Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Ólafur Rafnsson forseti framkvæmdastjórnar Smáþjóðaleika

27.05.2013

Aðalfundur Smáþjóðaleika og fundur framkæmdastjórnar Smáþjóðaleika voru haldnir á sveitasetri í Luxemborg í dag.  Fulltrúar ÍSÍ á aðalfundinum voru Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ og Lárus Blöndal varaforseti ÍSÍ.  Fulltrúar ÍSÍ á fundi framkvæmdastjórnar leikanna voru Ólafur Rafnsson forseti, Lárus Blöndal varaforseti og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri. Á fundinum tók Ólafur við embætti forseta framkvæmdastjórnar Smáþjóðaleikanna og gegnir því fram yfir leikana á Íslandi 2015.  Skipulagsnefnd leikanna 2015 hélt kynningu á leikunum 2015, íþróttagreinunum 10 sem keppt verður í, mannvirkjum, landi og þjóð.

Á myndinni eru embættismenn framkvæmdstjórnar ÍSÍ ásamt framkvæmdastjóra ÍSÍ í Luxemborg í morgun.