Smáþjóðaleikar 2015 á Íslandi kynntir
Skipulagsnefnd leikanna var sett á laggirnar í upphafi þessa árs en hana skipa:
Helga Steinunn Guðmundsdóttir, ritari framkvæmdastjórnar ÍSÍ, formaður skipulagsnefndar
Gunnar Bragason, gjaldkeri framkvæmdastjórnar ÍSÍ
Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ
Andri Stefánsson, sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ
Óskar Þór Ármannsson, sérfræðingur íþróttamála í Menntamálaráðuneytinu
Eva Einarsdóttir, formaður Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar
Ómar Einarsson, sviðsstjóri Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar
Steinþór Einarsson, skrifstofustjóri íþróttasviðs Reykjavíkurborgar
Ingvar Sverrisson, formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur
Frímann Ari Ferdinandsson, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur
Óskar Örn Guðbrandsson, verkefnastjóri Smáþjóðaleika 2015
Í fyrsta skipti verður keppt í golfi á Smáþjóðaleikum en alls verður keppt í 10 greinum á leikunum.
Áhaldafimleikar
Blak/Strandblak
Borðtennis
Frjálsíþróttir
Golf
Júdó
Körfuknattleikur
Skotíþróttir
Sund
Tennis
Laugardalurinn í hjarta Reykjavíkur verður aðal vettvangur leikanna þar sem allar ofantaldar greinar nema tennis, golf og skotfimi verða í mannvirkjum í dalnum. Segja má að með öllum þeim glæsilegu mannvirkjum sem þar eru til staðar hafi leikarnir á Íslandi ákveðna sérstöðu þar sem hvergi meðal þátttökuþjóðanna er mögulegt að keppa í eins mörgum greinum á eins litlu svæði.
Merki leikanna er hannað af Loga Kristjánssyni fyrrverandi sundmanni en Logi keppti á sínum ferli á þremur Smáþjóðaleikum og einum Ólympíuleikum.