Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.03.2026 - 22.03.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
16

Fundur með fulltrúum stjórnmálaflokkanna

17.04.2013

Nú styttist í kosningar til Alþingis og útlit fyrir að fjölbreyttir kostir verði í boði fyrir kjósendur. Íþróttahreyfingin er stærsta fjöldahreyfing á Íslandi og rödd hennar ætti að vega töluvert þegar komið er í kjörklefann.
ÍSÍ hefur ákveðið að boða til fundar með fulltrúum stjórnmálaflokkanna sem mælst hafa með 5% fylgi eða meira í skoðanakönnunum síðustu daga.

Fundurinn verður haldinn í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar föstudaginn 19. apríl kl. 12:00, sama dag og 71. Íþróttaþing ÍSÍ verður sett. Gert er ráð fyrir því að fundurinn standi yfir í eina og hálfa klukkustund. Áætlað er að hvert framboð fái 3 mínútur í framsögn en síðan verði fyrirspurnartími. Fundarstjóri verður Viðar Garðarsson formaður Íshokkýsambandsins.

Sambandsaðilar ÍSÍ og áhugamenn um íþróttir eru hvattir til að mæta á fundinn.