Aðalfundur Íslenskrar getspár
16.04.2013
Aðalfundur Íslenskrar getspár var haldinn á Grand Hótel Reykjavík í gær. Á fundinum kom fram að starfsemi Getspár hafi verið umfangsmikil á árinu 2012 og verkefnin fjölbreytileg. Reksturinn gekk vel, sem er einkar ánægjuleg útkoma og mikilvæg fyrir allar einingar íþróttahreyfingarinnar.
Stjórn Íslenskrar getspár er þannig skipuð: Þóra M. Þórarinsdóttir formaður, Lárus Blöndal varaformaður, Helga G. Guðjónsdóttir, Gunnar Bragason, og Vífill Oddsson.
Framkvæmdastjóri Getspár er Stefán Konráðsson.