Nýtt þátttökumet
26.02.2013
Lokadagur vinnustaðakeppni Lífshlaupsins er í dag, þriðjudaginn 26. febrúar. Nýtt þátttökumet var slegið í ár þar sem um 20.600 þátttakendur eru skráðir í grunnskóla- og vinnustaðakeppninni í ár.
Mikil spenna er á milli efstu vinnustaða og skóla í öllum flokkum. Úrslit verða staðfest á vefnum eftir kl. 14:00 fimmtudaginn 28. febrúar og verðlaunaafhendingin fer fram kl. 12:10 - 13:00 föstudaginn 1. mars í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Nánari upplýsingar er að finna á lifshlaupid.is
Meðfylgjandi myndir voru sendar í gegnum Facebook síðu Lífshlaupsins.