Nýtt þátttökumet
15.02.2013
Nú hafa 462 vinnustaðir skráð 11.840 liðsmenn til leiks í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins sem er nýtt þátttökumet. Í grunnskólakeppninni hafa 47 skólar skráð 7.600 nemendur til leiks.
En er hægt að skrá vinnustaði/skóla, lið/bekki og liðsmenn til leiks á lifshlaupid.is einnig er hægt að fylgjast með stöðunni á vefsíðunni.
Frábær þátttaka og mikil stemning er hjá þátttakendum frá Arion banka. 456 starfsmenn eru þátttakendur í Lífshlaupinu af 981. Hér á síðunni eru myndir af 2 af 59 liðum sem eru skráð til leiks frá bankanum.