Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
26

Hefur þitt hérað áhuga á að sækja um gæðavottunina Fyrirmyndarhérað ÍSÍ?

Hér er að finna upplýsingar fyrir íþróttahéruð varðandi viðurkenningu ÍSÍ sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ.

 

  • Gátlisti yfir öll þau atriði sem íþróttahérað þarf að uppfylla til að fá viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ: Gátlisti Fyrirmyndarhéraða ÍSÍ 
  • Íþróttahéraðið þarf að vinna handbók, með hliðsjón af ofangreindum gátlista, og nýtir til þess leiðbeinandi gögn frá ÍSÍ: Gerð og útlit handbókar - leiðbeiningar íþróttahéraðs.
  • Íþróttahéraðið skipar tengilið við verkefnið, sem annast ákveðin verkefni því tengdu. Upplýsingar varðandi verkefni tengiliðs á vegum Fyrirmyndarhéraðs: Fyrirmyndarhérað ÍSÍ - tengiliður.
  • Þegar íþróttahérað hefur uppfyllt þau atriði sem koma fram í gátlista ÍSÍ þá sækir héraðið formlega um viðurkenninguna til ÍSÍ ásamt fylgigögnum, undirritaðri af forsvarsmanni héraðsins og ósk um dagsetningu afhendingar.

Kynningarmyndband um verkefnið Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.

 

Athugið að hérað getur hvenær sem er í ferlinu sent hluta gagna til yfirlesturs hjá ÍSÍ eða leitað aðstoðar hjá ÍSÍ varðandi verkefnið, umsóknarferlið eða annað sem héraðið þarfnast leiðsagnar með.

Umsjón með Fyrirmyndarverkefnum ÍSÍ hefur Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á Stjórnsýslusviði ÍSÍ. Netfang vidar@isi.is, sími 514 4000 /863 1399.

Viðbótarupplýsingar um ferlið.

Umsókn héraðsins og fylgigögn eru lesin yfir á Stjórnsýslusviði ÍSÍ og ef skilyrði eru uppfyllt þá fer umsóknin til afgreiðslu hjá framkvæmdastjórn ÍSÍ.

Gott er að tengja afhendingu viðurkenningar við viðburði á vegum héraðsins til að auka sýnileika og koma á framfæri þessu mikilvæga skrefi sem félagið hefur tekið. Góður fyrirvari eykur líkur á því að hægt verði að verða við óskum héraðsins.

Við afhendingu fær héraðið innrammaða viðurkenningu ásamt fána Fyrirmyndarhéraða. Auk þess fær héraðið merki verkefnisins sent á stafrænu formi til notkunar í starfi héraðsins, s.s. á heimasíðu, á bréfsefni og í auglýsingum.

Að lokinni afhendingu þá eru nokkur atriði sem ÍSÍ leggur áherslu á og lúta að sýnileika og upplýsingagjöf, ásamt heimildum varðandi merki verkefnisins og fána, sjá nánar hér: Eftir viðtöku viðurkenningar - leiðbeiningar íþróttahéraða

Það er mikilvægt að allir sem starfa innan héraðsins, sem og íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda þess, séu meðvitaðir um viðurkenninguna og hvað í henni felst. Með viðurkenningunni er verið að senda skilaboð út í samfélagið um að héraðið starfi af fagmennsku og að innan þess séu ferlar og stefnur til að styðjast við og fylgja í starfinu.

Viðurkenningin gildir til fjögurra ára í senn en héraðið skal engu að síður senda inn árlega til ÍSÍ uppfærða handbók og eftir atvikum fylgigögn til yfirferðar og samþykktar. Huga þarf að umsókn um endurnýjun viðurkenningarinnar í tíma til ÍSÍ svo að samfella náist í gildistíma viðurkenningarinnar.

Ef viðurkenning fellur úr gildi þá þarf héraðið umsvifalaust að fjarlægja merki Fyrirmyndarhéraða af sínum miðlum og gæta að því að fáni og merki séu ekki nýttir áfram í starfi héraðsins þar til umsókn um viðurkenninguna hefur verið samþykkt að nýju.