Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30


Vala Flosadóttir

Vala Flosadóttir, stangarstökkvari og bronsverðlaunahafi á Ólympíuleikum, var útnefnd í Heiðurshöll ÍSÍ þann 29. desember árið 2012.

Vala fæddist 16. febrúar árið 1978. Vala flutti til Svíþjóðar á táningsaldri þar sem hún æfði stangarstökk. Á árunum 1995-1997 setti Vala fimm unglingaheimsmet í stangarstökki og
árið 1996 varð hún fyrsti Evrópumeistari sögunnar í stangarstökki kvenna á EM innanhús. Hún varð í 2. sæti á evrópska unglingameistaramótinu árið 1997 og hafnaði í 3. sæti á EM árið 1998. Sama ár setti hún tvívegis heimsmet í stangarstökki innanhúss. Árið 1999 varð hún Evrópumeistari 22 ára og yngri og silfurverðalaunahafi á HM innanhúss.

Árið 2000 náði Vala 3. sæti á Ólympíuleikunum í Sydney með stökki upp á 4,5 metra. Með stökkinu setti hún jafnframt Íslands- og Norðurlandamet. Hún varð fyrst íslenskra kvenna til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum. Vala var kjörin Íþróttamaður ársins árið 2000. Afreksferill Völu var glæsilegur, en Vala hætti keppni árið 2004.

Það er ÍSÍ mikill heiður að útnefna Völu Flosadóttur í Heiðurshöll ÍSÍ.

Myndasíða ÍSÍ - Vala Flosadóttir.