Raddir ungs fólks á Norðurlandi! Góð þátttaka á Sauðárkróki og Akureyri
24.03.2026
Viðburðurinn Raddir ungs fólks, sem er hluti af landsverkefni ÍSÍ og UMFÍ í samstarfi við svæðisstöðvum íþróttahéraðanna og Ungmennaráði UMFÍ, hélt áfram ferð sinni um landið í vikunni. Markmið verkefnisins er að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks og draga úr brottfalli úr skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Viðburðirnir, sem eru ætlaðir ungmennum á aldrinum 15–25 ára, fóru fram í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki í gær og í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag við góða mætingu á báðum stöðum. Unga fólkið sýndi mikinn áhuga á að taka þátt og koma á framfæri sínum sjónarmiðum um þátttöku í íþróttum, hindranir og þau atriði sem skipta mestu máli til að halda sem flestum inni í starfinu.
Ólafur Stefánsson, sem hefur tekið þátt í viðburðaröðinni víða um land, flutti sinn fyrirlestur á báðum stöðum. Þar fjallaði hann um þátttöku ungs fólks í íþróttastarfi og hvaða þættir hafa áhrif á áframhald í íþróttum. Fyrirlesturinn fékk góð viðbrögð og studdi vel við umræðuefni dagsins
Niðurstöður viðburðanna verða teknar svo saman og nýttar í áframhaldandi vinnu við heildstæða stefnumótun íþróttahreyfingarinnar, sem nú stendur yfir.











