Freyja Dís fyrst til að vinna sér þátttökurétt á úrslitamóti World Series í bogfimi
22.01.2024
Freyja Dís Benediktsdóttir, bogfimikona, varð um helgina fyrsti Íslendingurinn til að vinna sér inn þátttökurétt og keppa á úrslitamóti í heimsbikarkeppni U21 árs í bogfimi en keppt var í Nimes í Frakklandi. Freyja varð í sjötta sæti í heimsbikarnum á tímabilinu og tryggði sér þannig sæti á úrslitamótinu. Á úrslitamótinu Freyja keppti á móti hinni frönsku Alyssu Chambraud, en féll út í 16-liða úrslitum. Hún endaði í níunda sæti og var sátt við að vera á topp tíu listanum eftir tímabilið.
Nánari upplýsingar um afrek Freyju Dísar má finna á heimasíðu Bogfimisambandsins!
Mynd/Bogfimisamband Íslands
ÍSÍ óskar Freyju Dís innilega til hamingju með árangur og góðs gengis í verkefnunum sem framundan eru!