Formaður Bogfimisambands Íslands hlýtur jafnréttisverðlaun
03.08.2023
Guðmundur Örn Guðjónsson, formaður Bogfimisambands Íslands (BFSÍ) hlaut á dögunum jafnréttisverðlaun Alþjóðabogfimisambandsins - World Archery (WA) á heimsþinginu sem haldið var í Berlín í Þýskalandi dagana 27. - 29. júlí sl. Var Guðmundur verðlaunaður fyrir störf sín í þágu jafnréttis kynjana (Gender Equity Award 2023) og er þetta í fyrsta skipti sem karlmaður hlýtur þessi verðlaun, frá því byrjað var að veita verðlaunin árið 2009.
Frekari upplýsingar og fréttir af þinginu má finna hér.
ÍSÍ óskar Guðmundi innilega til hamingju með verðlaunin.