Heilbrigðisteymi ÍSÍ á Smáþjóðaleikunum
Smáþjóðaleikarnir eru í fullum gangi þessa vikuna og hafa margir frábærir íþróttamenn keppt og æft hér á Möltu við góð skilyrði. Það getur hins vegar tekið á að keppa daglega og þess vegna eru með íslenska hópnum valinkunnir fagaðilar sem sjá um heilbrigðisþjónustu við íslensku keppendurna. Það eru Örnólfur Valdimarsson læknir, Arnar Sigurðsson, læknir, Jóhannes Már Marteinsson, sjúkraþjálfari, Hlynur Sigurðsson, sjúkraþjálfari sundhópsins og Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur. Það er alltaf nóg að gera hjá heilbrigðisteyminu enda um 80 keppendur frá Íslandi sem þurfa að vera í sínu besta standi þegar þau taka þátt í erfiðum keppnum.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Arnar Sigurðsson, lækni, Jóhannes Már Harðarson, sjúkraþjálfara, Hafrúnu Kristjánsdóttur, sálfræðing, og Örnólf Valdimarsson, lækni.