Annasamt hjá frjálsíþróttaliðinu á fyrsta keppnisdegi þeirra á Smáþjóðaleikunum
Það var mikið að gera hjá frjálsíþróttafólkinu á þeirra fyrsta degi á Smáþjóðaleikunum og náðist góður árangur hjá keppendum. Tvenn bronsverðlaun litu dagsins ljós og sólin lék við keppendur og voru aðstæður góðar.
Kristófer Þorgrímsson tók þátt í 100m hlaupi og komst í úrslit í sínum riðli. Úrslitin fór fram seinni part og hljóp Kristófer frábærlega og endaði í 5. sæti á tímanum 10.78 sek.
Ívar Kristinn Jasonarson og Sæmundur Ólafsson tóku þátt í 400m hlaupi. Ívar hljóp á 49,51 sek og endaði í 4. sæti í sínum riðli. Sæmundur hljóp á 49,37 sek og endaði í 5. sæti í sínum riðli.
Elín Sóley Sigurbjörnsdóttir hljóp í 800 m hlaupi og endaði í 4. sætinu á tímanum 2:17.18 mín.
Arnar Pétursson og Íris Anna Skúladóttir tóku þátt í 10.000m hlaupi. Arnar endaði í 5. sæti á tímanum 31.22,41 mín en Íris Anna gerði sér lítið fyrir og endaði í 3. sæti á tímanum 36:00,19 mín sem er glæsilegur árangur hjá henni.
Birna Kristín Kristjánsdóttir stóð sig glæsilega þegar hún stökk 5,95 m í langstökkskeppni dagsins. Hún náði 4 gildum stökkum og nældi sér í 3.sætið sem var viriklega vel gert hjá henni.
Ingvi Karl Jónsson tók þátt í kringlukasti. Hann stóð vel og endaði í 4. sæti með kast upp á 50.39m.
Góður dagur hjá frjálsíþróttateyminu í dag! Við bendum á heimasíðu keppninnar fyrir nánari upplýsingar um keppnir miðvikudagsins en á morgun er frí í frjálsum. Heimasíðuna má finna hér.
Hér má finna streymi.