Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar 2023 lokið
Í gær, laugardag, var Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar árið 2023 slitið við hátíðlega athöfn í borginni Udine á Ítalíu. Fánaberar íslands á hátíðinni voru listskautakonan Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir og skíðamaðurinn Bjarni Þór Hauksson.
Fyrr um daginn var keppt í risasvigi sem var síðasta grein leikana. Við Íslendingar áttum þrjá keppendur í keppni í risasvigi sem allir stóðu sig með miklum sóma, en risasvig grein sem er lítið sem ekkert iðkuð hér á landi. Í drengjaflokki náði Matthías Kristinsson 38. sæti og Stefán Gíslason 60. sæti. Esther Ösp Birkisdóttir hafnaði í 49. sæti í stúlknaflokki.
Gríðarlega góð stemming hefur verið innan íslensku hópsins í ferðinni og koma allir reynslunni ríkari heim með góðar minningar í farteskinu og þakklæti fyrir að fá að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni.