Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
25

„Veitir okkur mikið og gott aðhald”

01.06.2022

 

Ungmennafélagið Kormákur á Hvammstanga fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á hátíð félagsins á félagssvæðinu í Kirkjuhvammi þriðjudaginn 31. maí síðastliðinn.  Það var Elísa Ýr Sverrisdóttir formaður félagsins sem tók á móti viðurkenningunni úr hendi Viðars Sigurjónssonar skrifstofustjóra ÍSÍ á Akureyri. Á myndinni eru frá vinstri þau Viðar Sigurjónsson og Elísa Ýr og ungir iðkendur Kormáks, þau Máney Dýrunn Þorsteinsdóttir og Anton Einar Mikaelsson, með fána Fyrirmyndarfélaga á milli sín.

„Stjórn Ungmennafélagsins Kormáks taldi mjög mikilvægt að fara í gegnum þá vinnu sem þurfti til að ná markmiðum ÍSÍ um Fyrirmyndarfélag þar sem það stuðlar að faglegra starfi félagsins og veitir okkur mikið og gott aðhald til að sinna t.d. forvarnahlutverki íþróttastarfsins vel”, sagði Elísa Ýr formaður Kormáks af þessu tilefni.

ÍSÍ óskar félaginu innilega til hamingju með viðurkenninguna.