Helga Katrín áfram formaður AKÍS
23.03.2022
Tíunda ársþing Akstursíþróttasambands Íslands (AKÍS) fór fram um síðastliðna helgi í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Þingið var vel sótt og mættu alls 21 fulltrúi af þeim 25 sem áttu rétt á setu á þinginu. Hafsteinn Pálsson 2. varaforseti ÍSÍ var þingforseti og ávarpaði hann þingið sem fulltrúi ÍSÍ við þingsetningu.
Fram kom að mikill metnaður er til þess að efla mótahald í íþróttinni og fjölga aðilum til þess að vinna við keppnishald í íþróttinni og einnig að fjölga keppendum. Nokkrar breytingar voru samþykktar á lögum sambandsins og reikningar voru samþykktir.Helga Katrín Stefánsdóttir var endurkjörin í embætti formanns AKÍS. Kosið var um þrjú sæti í stjórn og hlutu Halldór Jóhannsson, Aðalsteinn Símonarson og Halldór V Hauksson kosningu í þau sæti. Í varastjórn voru kjörnir Jóhann Egilsson, Sigurjón Andersen og Sigfús B Sverrisson.