Sameiginleg yfirlýsing ráðherra íþróttamála 37 ríkja
14.03.2022
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur undirritað sameiginlega yfirlýsingu ráðherra íþróttamála 37 ríkja, þ.m.t. ráðherra Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, um aðgerðir gegn Rússlandi og Hvíta-Rússlandi (Belarús) á sviði íþrótta vegna innrásarinnar í Úkraínu. Íþróttasambönd eru þar hvött til að:
- heimila hvorki Rússlandi né Hvíta-Rússlandi að halda alþjóðlega íþróttaviðburði,
- heimila ekki keppendum, skipuleggjendum og liðum sem keppa fyrir hönd Rússlands eða Hvíta-Rússlands að keppa í öðrum löndum. Þetta á einnig við um þau sem keppa fyrir hönd aðila, borga eða vörumerkja sem standa fyrir Rússland eða Hvíta-Rússlandi, þ.m.t. stór knattspyrnufélög,
- takmarka fjárveitingar og stuðning aðila með tengingu við Rússlandi eða Hvíta-Rússland.
Einnig eru íþróttasambönd hvött til að refsa ekki íþróttafólki, þjálfurum og dómurum sem ákveða að rifta samningi við félög frá Rússlandi, Hvíta-Rússlandi eða Úkraínu. Auk þess eru þau hvött til að refsa ekki skipuleggjendum fyrir að meina íþróttamönnum eða -liðum sem keppa fyrir hönd Rússlands eða Hvíta-Rússlands þátttöku í íþróttaviðburðum.
Yfirlýsingin er á ensku og má lesa hana hér í heild sinni.