Opnar æfingar í tilefni Íþróttaviku Evrópu
22.09.2020
Markmið Íþróttaviku Evrópu er að hvetja Evrópubúa til að hreyfa sig meira í sínu daglega lífi og eru allir hvattir til þess að finna sér hreyfingu við hæfi. Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu eru sumar deildir íþróttafélaga með opnar æfingar þar sem hver sem er getur komið og prófað íþróttina. Hér að neðan eru hlekkir inn á frekar upplýsingar um nokkrar íþróttadeildir sem bjóða opnar æfingar í Íþróttaviku Evrópu.
Íshokkídeild Fjölnis - Opnar æfingar
Skautafélag Reykjavíkur – Íshokkídeild
Handboltadeild Þróttar – frítt fyrir stelpur
Ju Jitsufélag Reykjavíkur – opið hús
Frjálsíþróttadeild ÍR – opnar æfingar
Skautafélag Reykjavíkur – Listskautadeild