Fimleikastjarna með Instagram ÍSÍ í dag
24.02.2020
Sólveig Bergsdóttir, landsliðskona í fimleikum, tekur við ÍSÍ story á Instagrami ÍSÍ í dag.
Sólveig hefur æft fimleika frá tveggja ára aldri og keppir með Stjörnunni og kvennalandsliði Íslands í hópfimleikum. Hún hefur unnið til fjölmargra verðlauna á alþjóðlegum vettvangi með liði sínu og landsliði. Kvennalandslið Íslands hefur náð góðum árangri á Evrópumótum í hópfimleikum, m.a. sigruðu þær mótið 2012, og voru í 2. sæti þrjú Evrópumót í röð 2014, 2016 og 2018. Sólveig hefur verið burðarás í liðinu og ein af þeim reyndari síðustu ár. Síðast vann Sólveig til silfurverðlauna á Norðulandamóti í nóvember 2019 með kvennaliði Stjörnunnar.
Fylgstu með degi í lífi Sólveigar á Instagram síðu ÍSÍ.