Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Ábyrgð í félagsstarfi

17.10.2019

Í ritinu Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga er gerð grein fyrir þeim lagaramma sem við á í félags- og tómstundastarfi fyrir börn og ungmenni á Íslandi og þeim aðgæslu- og eftirlitsskyldum sem hvíla á þeim sem hafa umsjón með börnum. Í ritinu kemur einnig fram hverjir teljast starfsmenn í félags- og tómstundastarfi og hlutverki foreldra lýst í því sambandi. Einnig er talað um möguleika á tryggingum, frítímaslysatryggingum, sem foreldrar taka fyrir börn sín (hluti af fjölskyldutryggingu), ábyrgðartryggingu þeirra sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi, frítímaslysatryggingu barna sem sveitarfélögin eru með og fjölskyldutryggingu foreldra en í þeim felst ábyrgðartrygging. Ritið er gefið út af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu 2012 og höfundur þess er Ragnhildur Helgadóttir lagaprófessor í HR. Ritið má sjá á issuu-síðu ÍSÍ hér fyrir neðan.

Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga pdf.