Hvernig hjálpa ég barninu mínu að blómstra í íþróttum?
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Fraedslusvid/68830079_2462955927077132_9148907203841753088_o.jpg?proc=400x400)
Hvernig hjálpa ég barninu mínu að blómstra í íþróttum? er vinnustofa fyrir foreldra barna og unglinga sem fer fram þann 27. ágúst nk. kl.20-22 í stofu M101 í Háskólanum í Reykjavík. Chris Harwood, prófessor í íþróttasálfræði við háskólann í Loughborough, mun fjalla um hvernig hægt er að hafa jákvæði áhrif á sálfræðilega og félagslega hæfni barna og unglinga í íþróttum.
Vinnustofan er samstarf Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Knattspyrnusambands Íslands og Háskólans í Reykjavík.
Viðburðurinn er á facebook, en þar er hægt að lesa sér meira til um vinnustofuna og Chris Harwood.
Frítt er inn og allir eru velkomnir.