Hópurinn sem fer á EYOWF Sarajevo
18.01.2019Framundan er Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar, vetrarleikar. Verða leikarnir nú haldnir í fjórtánda sinn. Ísland hefur átt þátttakendur á leikunum frá því þeir voru haldnir í fyrsta sinn.
Vetrarhátíðin fer að þessu sinni fram í Sarajevó og Austur-Sarajevó í Bosníu-Hersegóvínu 9.-16. febrúar n.k. Keppnisgreinar á leikunum eru alpagreinar, skíðaskotfimi, skíðaganga, íshokkí, skautahlaup, listskautar, krulla og snjóbrettagreinar. Keppendur koma frá 46 Evrópuþjóðum og verða yfir eitt þúsund talsins. Íslendingar munu eiga 13 keppendur á hátíðinni, auk þjálfara og flokksstjóra, dómara, sjúkraþjálfara og aðalfararstjóra. Á fundi Framkvæmdastjórnar ÍSÍ sem haldinn var 17. janúar voru tilnefningar frá Skíðasambandi Íslands (SKÍ) og Skautasambandi Íslands (ÍSS) um keppendur, flokksstjóra og þjálfara til þátttöku á leikunum samþykktar. Eftirtaldir munu taka þátt í leikunum fyrir Íslands hönd.
Alpagreinar
Aðalbjörg Lillý Hauksdóttir      Keppandi
Andri Gunnar Axelsson           Keppandi         
Aron Máni Sverrisson              Keppandi
Guðfinna Eir Þorleifsdóttir      Keppandi
Helga Björk Árnadóttir            Þjálfari
Magnús Finnsson                    Flokksstjóri og þjálfari
Snjóbretti
Baldur Vilhelmsson                 Keppandi
Birkir Þór Arason                     Keppandi
Bjarki Arnarsson                      Keppandi
Kolbeinn Þór Finnsson           Keppandi
Einar Rafn Stefánsson            Flokksstjóri og þjálfari
Listskautar
Marta María Jóhannsdóttir  Keppandi
Darja Zajcenko                        Flokksstjóri og þjálfari
María Fortescue                      Dómari
Skíðaganga
Egill Bjarni Gíslason                Keppandi
Fanney Rún Stefánsdóttir     Keppandi
Jakob Daníelsson                    Keppandi
Kolfinna Íris Rúnarsdóttir      Keppandi
Vadim Gusev                           Flokksstjóri og þjálfari
Tormod Vatten                       Þjálfari
Í fararstjórn á vegum ÍSÍ verða eftirtaldir:
Örvar Ólafsson                           fararstjóri
Mundína Ásdís Kristinsdóttir  sjúkraþjálfari
Ólympíuhátíðin er sett með athöfn sem nær hámarki þegar Ólympíueldur er tendraður og hátíðinni lýkur með lokaathöfn og skemmtun. Hátíðin hefur verið mikilvæg fyrir ungt íþróttafólk álfunnar í gegnum tíðina. Margir af fyrri keppendum á hátíðinni hafa síðar náð alla leið á efsta getustigi í sínum greinum.
Hægt verður að fylgjast með íslenskum þátttakendum á hátíðinni í gegnum miðla ÍSÍ:
Vefsíða ÍSÍ
Facebook ÍSÍ
Instagram ÍSÍ
SnapChat ÍSÍ (á meðan á hátíðinni stendur): isiiceland
Vefsíða leikanna
Facebook síða leikanna
#eyof2019 #sarajevo #eastsarajevo