PyeongChang 2018 - Íslendingar mættir í Ólympíuþorpið
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Afreks-og-olympiusvid/2018-PyeongChang/PyeongChang%202018%20-%20fyrstu%20a%c3%b0ilar.jpg?proc=400x400)
Íslensku þátttakendurnir á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang 2018 eru mættir í Ólympíuþorpið. Sá fyrsti var reyndar aðalfararstjóri íslenska hópsins, Andri Stefánsson, sem kom til Kóreu á miðvikudaginn til að undirbúa vistarverur og komu íslenska hópsins.
Í dag voru það fyrst keppendur í skíðagöngu, þeir Snorri Einarsson og Isak S. Pedersen ásamt þeim Vegard Karlstrøm, Dag Elevold og Grími Rúnarssyni sem komu um miðjan dag á staðartíma eftir langt ferðalag frá Noregi í gegnum Finnland. Töluverður fjöldi þátttakenda er væntanlegur í dag frá flestum þátttökuþjóðum og síðar í dag og í kvöld eru aðrir íslenskir þátttakendur væntanlegir frá Íslandi og frá Bandaríkjunum, en þaðan kemur Freydís Halla Einarsdóttir sem stundar þar nám.