Göngum í skólann sett í morgun
Þá fluttu nemendur flott söngatriði við gítarundirleik og meðal áheyrenda í salnum voru prúðbúnir lögregluþjónar. Að lokinni tónlist og ræðuhöldum þá fór formleg gangsetning verkefnisins fram með táknrænum göngutúr nemenda, gesta, starfsfólks og samstarfsaðila um Víðistaðatún í dýrindis sól og blíðu.
Hægt er að sjá myndir frá setningarhátíðinni hér á myndasíðu ÍSÍ.
Þeir aðilar sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Samgöngustofa og Landssamtökin Heimili og skóli. Göngum í skólann er einnig hluti af Íþróttaviku Evrópu (European Week of Sport) sem fer fram vikuna 23.-30.september og #BeActive átakinu.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þakkar nemendum og starfsfólki Víðistaðaskóla kærlega fyrir glæsilegar móttökur og gestrisni.