Ester Sigurðardóttir næsti framkvæmdastjóri UÍA
![](/library/Myndir/Frettamyndir/ester_sigurasta_0008_feb17_web.jpg?proc=400x400)
Ester lauk námi í upplýsingastjórnun frá Portobello Collage á Írlandi. Hún starfaði í áratug hjá Íslenskum aðalverktökum, síðan markaðsdeild Fréttablaðsins. Á Djúpavog flutti hún síðan og þjálfaði þá hjá Umf. Neista og kenndi í grunnskólanum. Síðustu ár hefur hún hefur aðstoðað fyrirtæki við markaðssetningu bæði hér heima og erlendis. Hún hefur verið búsett á Vopnafirði síðan 2014. Ester kemur til starfa um miðjan mars.