Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Opið fyrir umsóknir í Ferðasjóð íþróttafélaga

29.11.2016

Búið er að opna umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga. Frestur til að skila inn umsóknum vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót á árinu 2016 rennur út á miðnætti mánudaginn 9. janúar 2017. Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn. Til úthlutunar að þessu sinni eru 97 milljónir króna.  Styrkir úr sjóðnum verða greiddir út í febrúar. Hægt er að fara inn á umsóknarsvæðið með því að smella hér eða smella á tengilinn „Ferðasjóður íþróttafélaga” hér hægra megin á heimasíðunni undir listanum „Gagnlegt”. 

Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra.  Listi yfir styrkhæf mót opnast í kerfinu þegar búið er að stofna umsókn.

Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is.