Ingigerður endurkjörin formaður ÍRB
![](/library/Myndir/Sambandsadilar/ithrottaherud/irb.jpg?proc=400x400)
Tillaga um breytingu á reglugerð vegna tilnefninga á íþróttafólki ársins í Reykjanesbæ var samþykkt, en breytingin felur í sér að framvegis verði bæði íþróttakona og íþróttakarl ársins tilnefnd. Hliðstætt mun einnig gilda um íþróttafólk sérgreina á sambandssvæðinu. Ingigerður var endurkosin formaður næsta starfsárs. Fulltrúi ÍSÍ var Sigríður Jónsdóttir og ávarpaði hún þingfulltrúa og flutti kveðjur frá forseta og framkvæmdastjórn.