Knattspyrnudeild Skallagríms fyrirmyndardeild ÍSÍ
12.01.2015Knattspyrnudeild Skallagríms fékk afhenta endurnýjun viðurkenningar deildarinnar sem fyrirmyndardeild ÍSÍ á hófi UMSB í Borgarnesi laugardaginn 10. janúar sl. þar sem íþróttamaður ársins var kjörinn. Það var formaður deildarinnar, Ívar Örn Reynisson sem tók við viðurkenningunni úr hendi Viðars Sigurjónssonar skrifstofustjóra ÍSÍ á Akureyri. Íþróttamaður UMSB var kjörinn Helgi Guðjónsson. Helgi er mjög fjölhæfur íþróttamaður sem hefur lagt stund á knattspyrnu, körfuknattleik og frjálsar íþróttir. Á myndinni eru Viðar og Ívar Örn með fána fyrirmyndarfélaga ÍSÍ á milli sín. Þess má geta að körfuknattleiksdeild Skallagríms vinnur nú hörðum höndum að því að fá viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndardeild.