Verðlaun afhent í netratleik Forvarnardagsins
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Fraedslusvid/Forvarnardagur%20%c3%a1%20Bessast%c3%b6%c3%b0um.jpg?proc=400x400)
Vinningshafar voru þau Ásdís Ægisdóttir úr Hörðuvallaskóla í Kópavogi, Bragi Þór Eggertsson úr Hlíðaskóla í Reykjavík og Leó Snær Róbertsson úr Vallaskóla á Selfossi. Öll stunda þau nám í 9.bekk.
Að Forvarnardeginum standa forseti Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, UMFÍ, Skátarnir, HÍ og HR ásamt ÍSÍ. Stuðningsaðili verkefnisins er lyfjafyrirtækið Actavis. Fulltrúar þessara stofnanna og félagasamtaka mættu á Bessastaði ásamt verðlaunahöfum og fjölskyldum þeirra. Eftir verðlaunaafhendingu var boðið upp á kaffi og með því.