Upptökur frá ráðstefnu um stefnumótun í afreksíþróttum
03.11.2014
Ráðstefna um stefnumótun í afreksíþróttum fór fram í íþróttamiðstöðinni í Laugardal mánudaginn 13. október sl.
Var hún vel sótt af aðilum úr íþróttahreyfingunni og stóð frá kl. 9:00 fram til rúmlega 13:00.
Nú er búið ganga frá myndefni frá þessum viðburði og skeyta saman fyrirlestrum og glærum. Er um þrjá hluta að ræða og eru þeir aðgengilegir hér.
Upplýsingar um dagskrá og innihald hvers hluta má finna á sama stað.