Heimsókn frá Íþróttasambandi Færeyinga
Petur Elias Petersen forseti Íþróttasambands Færeyja (ÍSF), Petur Ove Petersen varaforseti, Anna Rein úr stjórn, Jarvin Feilberg Hansen starfsmaður og Annika H. Lindenskov starfsmaður áttu vinnufund með framkvæmdastjóra og starfsfólki ÍSÍ á föstudaginn síðastliðinn. Fundað var um ýmisleg sameiginleg hagsmunamál en einnig fengu gestirnir frá Færeyjum kynningu á helstu verkefnum allra stoðsviða ÍSÍ. Þau skoðuðu einnig íþróttamannvirki í Laugardalnum.
Það var starfsfólki ÍSÍ sérstök ánægja að taka á móti sendinefndinni frá Færeyjum og eiga með henni vinnufund en mikið og gott samstarf er á milli ÍSÍ og ÍSF og hefur svo verið í áranna rás. Á myndinni eru frá vinstri: Anna úr stjórn ÍSF, Líney framkvæmdastjóri ÍSÍ, Jarvin starfsmaður ÍSF, Petur Elias forseti ÍSF, Annika starfsmaður ÍSF og Petur Ove varaforseti ÍSF.