Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26

Síðasti keppnisdagurinn í Lífshlaupinu

25.02.2014Síðasti keppnisdagurinn í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins er í dag, þriðjudaginn 25. febrúar. Met þátttaka er í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins og hefur þátttakan aukist um 8% á milli ára. Nú hafa 463 vinnustaðir skráð 13.500 liðsmenn til leiks. Góð þátttaka var einnig í grunnskólakeppninni sem lauk 18. febrúar en þar skráðu 45 skólar skráð 7.440 nemendur til leiks. 

Verðlaunaafhending verður föstudaginn 28. febrúar í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. 

Þátttakendur hafa sent inn myndir og myndbönd í myndaleikinn sem er í ganga á Facebook, sjá nánar hér.