Fyrri umferð í svigi kenna lokið
21.02.2014
Að lokinni fyrri ferðinni í svigi kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Sochi þá er Helga María Vilhjálmsdóttir í 43. sæti og Erla Ásgeirsdóttir í 45. sæti. Helga María kom í mark á tímanum 1:02,69 mínútum og var rétt rúmum tíu sekúndum frá Mikaelu Shiffrin sem er efst eftir fyrri ferðina en Erla kom í mark á tímanum 1:03,55 mínútum. Alls komst 61 keppandi af 88 skráðum keppendum í mark í fyrri ferðinni en fjölmargir keppendur kræktu skíðunum í hlið og féllu úr leik.
Seinni ferðin í sviginu hefst kl. 16:15 og verður spennandi að fylgjast Erlu og Helgu Maríu í brautinni.