Keppni í stórsvigi kvenna flýtt!
17.02.2014
Veðurskilyrði í Sochi hafa sett strik í tímasetningar viðburða en mikil þoka hefur verið á keppnissvæðunum í dag. Þetta hefur haft í för með sér að keppni í stórsvigi kvenna hefur verið flýtt og hefst fyrri umferð kl. 05:30 í nótt. Seinni umferð hefst kl. 09:00 í fyrramálið.
Í stórsvigi keppa Helga María Vilhjálmsdóttir og Erla Ásgeirsdóttir.