Umsóknarfrestur í Afrekskvennasjóðs Íslandsbanka og ÍSÍ rennur út í dag
06.12.2013
Minnt er á að umsóknarfrestur í Afrekskvennasjóð Íslandsbanka og ÍSÍ rennur út í dag föstudaginn 6. desember. Nánari upplýsingar um sjóðinn og hvernig nálgast má umsóknareyðublað um styrk úr sjóðnum má finna hér.
Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ var stofnaður að frumkvæði
Íslandsbanka í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands árið
2007. Tilgangur sjóðsins er að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum
og gera þeim kleift að stunda íþrótt sína af krafti. Sjóðurinn hefur
frá upphafi virkað sem hvatning og stuðningur við afreksíþróttakonur úr
einstaklings- og hópíþróttum, sem stefna að frekari framförum og árangri
í íþrótt sinni. Með fréttinni fylgir mynd frá síðustu úthlutun úr
sjóðnum.