Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Undirskrift samstarfssamnings Morgunblaðsins og Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ

03.12.2013

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður 25 ára á næsta ári og mun hlaupið fara fram laugardaginn 14. júní 2014. Undirbúningur fyrir hlaupið er kominn á fullt og í gær var undirritaður samstarfssamningur við Morgunblaðið vegna aðkomu þeirra að Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ.

Samstarfssamningurinn felur í sér að merki Morgunblaðsins verður á annarri ermi Kvennahlaupsbolsins sem og á völdu kynningarefni í tengslum við Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ.

Morgunblaðið hefur verið samstarfsaðili Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ undanfarin ár og er Kvennahlaupsnefnd ÍSÍ afar ánægð með áframhaldandi samstarf.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Þóru Björg Hallgrímsdóttur (t.v.) sem skrifaði undir fyrir hönd Morgunblaðsins og Sigríði Ingu Viggósdóttur (t.h.) sem skrifaði undir fyrir hönd ÍSÍ.