Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22

Norræna skólahlaupið var sett í morgun

08.09.2017

Norræna skólahlaupið var sett í Giljaskóla á Akureyri í morgun kl. 10:00. Norræna skólahlaupið er árlegt verkefni sem grunnskólum á Norðurlöndunum býðst að taka þátt í. Hlaupið var fyrst haldið árið 1984 og er haldið í 34. skipti í ár. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sér um framkvæmd verkefnisins á Íslandi. Hlaupið var vel skipulagt af Giljaskóla og tóku yfir 400 nemendur og starfsmenn þátt.

Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ sagði nokkur orð við setningu hlaupsins. Hún afhenti skólastjóra Giljaskóla, Jóni Baldvini Hannessyni, nokkra bolta að gjöf. Sandra María Jessen landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Þórs/KA spjallaði við krakkana við setningu hlaupsins, en hún var nemandi Giljaskóla í tíu ár. Hún talaði um mikilvægi hreyfingar og þess að hreyfa sig á einhvern hátt, sama hvort um væri að ræða skipulagða íþróttaiðkun eða göngutúr með vinum. Blossi, lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015, var á staðnum og hvatti krakkana áfram í hlaupinu. Mjólkursamsalan, sem hefur styrkt hlaupið frá upphafi, gaf krökkunum ískalda mjólk í lok hlaupsins.

Markmiðið með Norræna skólahlaupinu er að hvetja nemendur til að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Á síðasta ári tóku rúmlega 15.000 grunnskólanemendur frá um 63 skólum á Íslandi þátt í hlaupinu og hlupu til samans um 40 hringi í kringum landið, en hægt er að velja um þrjár vegalengdir 2,5, 5 og 10 kílómetra. Árið 2015 tengdist verkefnið í fyrsta sinn Íþróttaviku Evrópu, sem er verkefni á vegum Evrópuráðsins. Af því tilefni var bryddað upp á þeirri nýjung að draga út þrjá skóla sem tóku þátt í Norræna skólahlaupinu og luku hlaupinu fyrir lok september. Sá hátturinn var einnig á árið 2016. Til mikils er að vinna í ár, eins og önnur ár, ef skólar ljúka hlaupi fyrir lok september því þrír skólar fá 100.000 króna inneign í Altis. Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu. 

Verkefnið nýtur stuðnings ÍSÍ, Mjólkursamsölunnar og Evrópuráðsins, og er í samvinnu við Íþrótta- og heilsufræðifélag Íslands.
 

Fleiri myndir frá deginum má sjá á myndasíðu ÍSÍ.

Hér má sjá myndband frá deginum.

 

Myndir með frétt