Námskeið ungra þátttakenda í Ólympíu
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, kven- og karlkyns, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 16. júní-1.júlí n.k. Að þessu sinni er aðal umfjöllunarefnið íþróttastjórnun og ólympíuhreyfingin, en auk þess verður lögð áhersla á siðfræði og menntun.
Flugferðir og gisting og uppihald eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Leitað er að einstaklingum sem náð hafa mjög góðum árangri í íþróttagrein (-greinum) og/eða sinnt kennslu/þjálfun/félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar, ásamt því að sýna málefnum ólympíuhreyfingarinnar sérstakan áhuga. Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á ensku og/eða frönsku og vera fyrirmynd annars æskufólks í hvívetna.
Umsóknum skal skilað, á þar til gerðum eyðublöðum til skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, ekki seinna en þriðjudaginn 28. febrúar n.k. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöðin HÉR.
Umsókn skal skilað á ensku á skrifstofu ÍSÍ og skulu fylgja henni tvær passamyndir.
Frekari upplýsingar veitir Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ sími 514 4000, ragnhildur@isi.is.
Einnig má benda á heimasíður IOA www.ioa-sessions.org/ og www.ioa.org.gr