Ársskýrsla ÍSÍ
20.04.2015
Á 72. Íþróttaþingi ÍSÍ var lögð fram ítarleg ársskýrsla sem spannar tvö ár í starfsemi ÍSÍ. Í skýrslunni er m.a. finna ársreikning ÍSÍ fyrir árin 2013 og 2014 ásamt yfirliti yfir styrki til sambandsaðila ÍSÍ á því tímabili. Skýrslan stiklar á helstu verkefnum ÍSÍ og viðburðum síðustu tveggja ára. Einnig var á þinginu lagt fram viðamikið tölfræðirit yfir stærð og umfang íþróttahreyfingarinnar. Upplýsingarnar eru fengnar úr Felix, skráningarkerfi ÍSÍ og UMFÍ.
Lesa má ársskýrslu ÍSÍ hér og tölfræðirit 2013 hér á heimasíðu ÍSÍ.