Samningur við Air Iceland Connect
Til þess að fá inneignarkóða þarf að senda póst á mottaka@isi.is og tilgreina fyrir hvaða félag og hve marga leggi er verið að óska eftir. Því næst er farið á vefsíðu AIC og flug bókað með inneignarkóðann við hönd.
Einstaklingsbókanir fara alfarið í gegnum bókunarvél á vefsíðu AIC. Búið er að leggja af svokölluð ÍSÍ-fargjöld fyrir einstaklinga en í staðinn er notast við inneignarkóða sem fela í sér 2.650 króna inneign. Einungis er leyfilegt að nota eitt inneignanúmer pr. fluglegg. Hægt er að nota inneignina upp í fargjöld í öllum verðflokkum sem í boði eru á bókunarsíðu AIC. Þar sem afslátturinn er föst upphæð þá er hann hlutfallslega hagstæðastur á lægstu fargjöldunum. Góður fyrirvari á bókun getur því borgað sig. Inneignarkóðana þarf að nálgast fyrirfram á skrifstofu ÍSÍ á hefðbundnum skrifstofutíma og því er hreyfingin hvött til að setja sig í samband við ÍSÍ í góðum tíma fyrir bókun. Til þess að fá inneignarkóða þarf að senda póst á mottaka@isi.is
Hópabókanir fara í gegnum Hópadeild AIC og eru ÍSÍ-hópafargjöldin tíunduð í samningnum sem finna má hér fyrir neðan.
Eins og áður er samningur ÍSÍ og AIC byggður á gagnkvæmu trausti og virðingu á milli aðila. Sambandsaðilar eru hvattir til að kynna sér samninginn vel og hafa tímann fyrir sér við bókanir, ef mögulegt er. Það eykur líkurnar á því að menn nái að bóka ferðirnar á hagstæðum kjörum.
Góða ferð !