Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

13.01.2017

Ráðstefna um lyfjamál

Ráðstefna um lyfjamálÍ tengslum við WOW Reykjavik International Games 2017 standa ÍSÍ og ÍBR fyrir ráðstefnu um lyfjamál í íþróttum. Þar munu þrír einstaklega áhugaverðir fyrirlesarar flytja erindi.
Nánar ...
13.01.2017

Vorfjarnám í þjálfaramenntun

Vorfjarnám í þjálfaramenntunVorfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 6. febrúar nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 25.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 22.000.- og öll námskeiðsgögn innifalin.
Nánar ...
12.01.2017

Undirritun samstarfssamnings við Sænsk-íslenska

Undirritun samstarfssamnings við Sænsk-íslenskaÁ dögunum var skrifað undir samning við Sænsk-íslenska ehf. um kaup á bolum fyrir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2017. Undirbúningur fyrir hlaupið er kominn á fullt en hlaupið mun fara fram 18. júní 2017. Það voru þær Hrönn Guðmundsdóttir sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ og Björg Gunnarsdóttir frá Sænsk-íslenska ehf. sem undirrituðu samstarfssamninginn.
Nánar ...
10.01.2017

Yfirlýsing frá Lárusi L. Blöndal, forseta ÍSÍ

Með vísan í viðtal við mig á Stöð2 í gærkvöldi varðandi úthlutun úr Afrekssjóði og umræðna sem um það hefur sprottið í dag vil ég koma eftirfarandi á framfæri. Mér finnst leitt að orð mín hafi misskilist og að einhverjum finnist ég hafa haft í hótunum við þau tvö sambönd sem lýstu yfir óánægju með úthlutun Afrekssjóðs ÍSÍ. Það var alls ekki meining mín og vil ég biðja þá hina sömu afsökunar á því að orða hug minn ekki betur.
Nánar ...
10.01.2017

3 ár í Ólympíuleika ungmenna

Þriðju Vetrarólympíuleikar ungmenna fara fram í Lausanne í Sviss frá 10. janúar til 19. janúar 2020. Í dag eru þrjú ár þar til leikarnir verða settir, eða 1097 dagar.
Nánar ...
09.01.2017

Síðasti skiladagur umsókna í Ferðasjóð íþróttafélaga

Í dag er síðasti skiladagur umsókna í Ferðasjóð íþróttafélaga en skila má umsóknum til miðnættis í kvöld en þá verður lokað sjálfvirkt fyrir umsóknir. Ekki er unnt að taka á móti umsóknum eftir að kerfinu hefur verið lokað. Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrk úr sjóðnum vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót.
Nánar ...
06.01.2017

Lífshlaupið hefst 1. febrúar

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. Opnað hefur verið fyrir skráningar í Lífshlaupið 2017.
Nánar ...
05.01.2017

ÍSÍ úthlutar afreksstyrkjum – Breytingaár framundan

ÍSÍ úthlutar afreksstyrkjum – Breytingaár framundanFramkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands samþykkti, fimmtudaginn 8. desember 2016, tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ að úthlutun fyrir árið 2017. Styrkveitingar ÍSÍ til sambandsaðila nema samtals rúmlega 150 milljónum króna að þessu sinni, en um 100 m.kr. verður úthlutað síðar á árinu 2017 og þá eftir nýjum reglum Afrekssjóðs sem verið er að vinna að.​
Nánar ...
04.01.2017

Kynferðislegt ofbeldi í íþróttum

Kynferðislegt ofbeldi í íþróttumÍ ljósi frétta frá Bretlandi um kynferðislegt ofbeldi innan íþróttahreyfingarinnar þar í landi vill ÍSÍ benda á bækling sem gefinn var út í árslok 2013. Bæklingurinn er um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum og unglingum í íþróttum og er byggður á bæklingi sem gefinn var út af Íþrótta- og Ólympíusambandi Danmerkur en staðfærður þannig að hann passaði inn í aðstæður íþróttahreyfingarinnar hér á landi og samræmast íslenskri löggjöf. Fjöldi sérfræðinga veitti aðstoð við útgáfu bæklingsins.
Nánar ...