Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

28.01.2015

Vorfjarnám í þjálfaramenntun

Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst í febrúar. Námið er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Fjarnám 1. stigs hefst mánudaginn 9. febrúar og fjarnám 2. og 3. stigs hefst mánudaginn 16. febrúar. Námið gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar enda um að ræða almennan hluta þekkingarinnar. Sérgreinahlutann taka nemendur svo hjá viðkomandi sérsambandi/sérnefnd ÍSÍ. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár enda miklar kröfur gerðar af samfélaginu til menntunar íþróttaþjálfara. Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og er skráningarfrestur til föstudagsins fyrir upphaf náms.
Nánar ...
26.01.2015

Úttekt á kostnaði vegna afreksfólks

Á blaðamannafundi í tengslum við úthlutun ÍSÍ á styrkjum Afrekssjóðs ÍSÍ fyrir 2015 tilkynnt forseti ÍSÍ, Lárus L. Blöndal, um að vinna væri hafin við að reikna út kostnað vegna íþróttamanna.
Nánar ...
25.01.2015

Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar

Vetrarólympíuhátíð EvrópuæskunnarVetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar var sett fyrr í kvöld í Vorarlberg í Austurríki. Alls eru keppendur á hátíðinni um 900, þess utan eru um 600 þjálfarar og fararstjórar sem fylgja þátttökuþjóðunum.
Nánar ...
23.01.2015

ÍSÍ úthlutar afreksstyrkjum

ÍSÍ úthlutar afreksstyrkjum Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands samþykkti, fimmtudaginn 22. janúar 2015, tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ að úthlutun fyrir árið 2015. Styrkveitingar ÍSÍ að þessu sinni nema samtals rúmlega 122 milljónum króna
Nánar ...
21.01.2015

Sigurjón endurkjörinn formaður Kraftlyftingasambandsins

Sigurjón endurkjörinn formaður KraftlyftingasambandsinsÁrsþing Kraftlyftingasambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal laugardaginn 17. janúar sl. Sigurjón Pétursson var endurkjörinn formaður sambandsins. Aðrir stjórnarmenn voru ekki í kjöri. Í varastjórn til eins árs voru kosin þau Einar Már Rikarðsson, Árdís Ósk Steinarsdóttir og Jón Sævar Brynjólfsson.
Nánar ...