Setning Lífshlaupsins 2026 fór fram í dag
02.02.2026
Setning Lífshlaupsins 2026 fór fram í dag, 2. febrúar, í höfuðstöðvum Icelandair í Hafnarfirði . Þetta er í nítjánda sinn sem verkefnið er sett af stað og tekur fjöldi vinnustaða, skóla og einstaklinga þátt víðs vegar um landið.
Bogi Nils Bogason bauð gesti velkomna og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, stýrði dagskránni. Ávarp fluttu Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis og Kristín María Thoroddsen formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðarbæjar.
Í erindunum var fjallað um mikilvægi daglegrar hreyfingar, áhrif hennar á heilsu og lífsgæði og minnt á ráðleggingar um hreyfingu fullorðinna og barna. Jafnframt var lögð áhersla á félagslega þætti hreyfingar, svo sem að efla starfsanda, styrkja samveru og rjúfa einangrun. Fram kom að sameiginlegt átaksverkefni á borð við Lífshlaupið geti haft jákvæð áhrif á stemningu og tengsl innan hópa og því tengdu sagði mannauðsteymi Icelandair frá því hvernig þátttakan hjá þeim hefur styrkt samheldni og myndað góða stemningu á meðal starfsmanna undanfarin ár.
Einnig var bent á fjölbreytt verkefni sveitarfélaga, m.a. í Hafnarfirði, sem miða að því að styðja við virkan lífsstíl og bjóða upp á aukin hreyfitækifæri fyrir alla aldurshópa.
Lífshlaupið er heilsu‑ og hvatningarverkefni Íþrótta‑ og Ólympíusambands Íslands. Á www.lifshlaupid.is má finna upplýsingar, leiðbeiningar og fræðsluefni fyrir þátttakendur.

.jpg?proc=250x250)




