Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.02.2026 - 21.02.2026

Ársþing SÍL

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
24

Takk fyrir allar tilnefningarnar

12.12.2025

 

Þann 5. desember, á alþjóðadegi sjálfboðaliðans, var lokað fyrir tilnefningar til Íþróttaeldhugans 2025. Alls bárust 208 tilnefningar um 116 einstaklinga úr 25 íþróttagreinum.

Nú hefur valnefnd um Íþróttaeldhugann tekið til starfa en hana skipa fyrrum afreksíþróttafólkið, Þórey Edda Elísdóttir sem er formaður, Margrét Lára Viðarsdóttir, Kristín Rós Hákonardóttir, Dagur Sigurðsson og Einar Ólafsson. Tilkynnt verður um val á  Íþróttaeldhuganum 2025 á hófi Íþróttamanns ársins þann 3. janúar og standa Lottó og Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands saman að þessari viðurkenningu.

Það er gleðilegt að sjá hvað íþróttahreyfingin hefur tekið vel í þetta verkefni og það er einnig jákvætt að sjá hversu margar einingar innan íþróttahreyfingarinnar eru farnar að útnefna sjálfboðaliða úr sínum röðum. Höldum áfram að lyfta upp störfum sjálfboðaliða því að án þeirra yrði lítið íþróttastarf.