Hjólað í vinnuna hefst á morgun

Miðvikudaginn 7. maí mun Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefja heilsu- og hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna í tuttugasta og þriðja sinn. Það stendur að vanda yfir í þrjár vikur eða til 27. maí. Á þeim tíma eru landsmenn hvattir til að hreyfa sig og nýta sér heilsusamlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur með því að hjóla, ganga eða nota annan virkan ferðamáta.
Að hjóla í vinnuna eykur daglega hreyfingu, hjólreiðar eru hagkvæmar og góðar fyrir pyngjuna og samgöngumátinn er umhverfisvænn. Hjólreiðar eru bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti og jafnframt eru þær frábær útivist, hreyfing og öflug líkamsrækt. Verkefnið Hjólað í vinnuna er góð leið til þess að hressa upp á stemninguna í fyrirtækinu og þjappa hópnum saman.
Dagskráin er eftirfarandi:
-
Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, býður gesti velkomna og stýrir dagskrá
Ávörp flytja:
-
Heiða Björk Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkurborgar
-
Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar
-
María Ögn Guðmundsdóttir, hjólreiðakona
Að ávörpunum loknum munu gestir hjóla átakið formlega af stað.
Í vinnustaðakeppni er fyrst og fremst keppt um flesta þátttökudaga hlutfallslega miða við heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum. Keppt er í átta keppnisflokkum út frá stærð vinnustaða. Að auki er kílómetrakeppni þar sem keppt er annars vegar á milli liða um heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra miða við fjölda liðsmanna í liði.
Í ár hvetjum við þá sem vinna heiman frá sér að byrja eða enda vinnudaginn á því að hjóla, ganga eða nýta annan virkan ferðamáta sem nemur kílómetrum til og frá vinnu. Einfaldara getur það ekki verið og allir geta tekið þátt, líka þeir sem vinna heima.
Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Undanfarinn áratug hefur orðið gríðarleg vakning á hjólreiðum sem heilsusamlegum samgönguvalkosti. Ætla má að margir þátttakendur hafi tekið hjólreiðar upp sem lífstíl í framhaldi af þátttöku sinni í verkefninu. ÍSÍ er stolt af því að hafa stuðlað að bættri hjólamenningu á Íslandi og orðið til þess að vinnustaðir og sveitarfélög hafi bætt til muna aðstöðu fyrir hjólandi fólk.
Allar upplýsingar um Hjólað í vinnuna er að finna á www.hjoladivinnuna.is en þar má finna áhugavert efni, reglur keppninnar, hvatningarbréf, veggspjöld og fleira.
Nánari upplýsingar um verkefnið veita Linda Laufdal og Þórarinn Alvar Þórarinsson, starfsmenn Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, í síma 514-4000 eða á netfangið hjoladivinnuna@isi.is.