Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.03.2026 - 22.03.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
16

Kristjana Arnarsdóttir komin til starfa hjá ÍSÍ

04.04.2025

 

Kristjana Arnarsdóttir hefur tekið til starfa sem nýr verkefnastjóri kynningarmála á skrifstofu ÍSÍ, í stað Sigríðar Unnar Jónsdóttur sem lét af störfum um síðustu áramót.

Kristjana er með B.A.-pró í mannfræði og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og MSc-próf í markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún var um árabil íþróttafréttamaður og þáttastjórnandi hjá RÚV og stýrði meðal annars umfjöllun frá fjölmörgum stórmótum í íþróttum. Kristjana var síðast aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar sem lét af embætti mennta- og barnamálaráðherra í desember 2024.

Kristjana er boðin hjartanlega velkomin til starfa og henni óskað allra heilla í starfi hjá ÍSÍ.