Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Ársþing ÞRÍ

01.03.2023

 

Sjöunda ársþing Þríþrautarsambands Íslands, ÞRÍ fór fram um helgina í sal Tækniskólans. Dagskráin var hefðbundin samkvæmt lögum ÞRÍ.  
Kolbrún Sigurgeirsdóttir, stjórnarmaður ÍSÍ, ávarpaði þingið og forseti ÞRÍ kynnti ársskýrslu sambandsins.  Gjaldkeri fór yfir rekstur síðasta árs, sem var mjög traustur ásamt því að kynna rekstraráætlun ársins 2023. Nokkrar lagabreytingar voru samþykktar á þinginu. 

Ný stjórn var kosin en aðalmenn eru kosnir til tveggja ára og því þarf ekki að kjósa nýja stjórn á hverju ársþingi. Að þessu sinni var kosið um tvö sæti aðalmanna til tveggja ára og voru Sveinn Símonarson og Margrét J. Magnúsdóttir sjálfkjörin. Fyrir í stjórn (kosin í fyrra til tveggja ára) eru Valerie Maier (forseti),  Margrét Ágústsdóttir (gjaldkeri) og Sædís Jónsdóttir. Varamenn í stjórn, til eins árs, voru kjörin Hildur Andrjesdottir, Katrín Pálsdóttir og Ragnar Fjalar Sævarsson. 

Nánari upplýsingar um þingið má finna hér.

Á meðfylgjandi frétt er ný stjórn samankomin en Sædís Jónsdóttir var fjarverandi.