Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

07.02.2022

Vorfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst mánudaginn 14. febrúar næstkomandi.  Námið er 8 vikur á 1. stigi og 5 vikur á 2. og 3. stigi.  Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.  

Skráning á öll stigin fer fram á Sportabler:  https://www.sportabler.com/shop/isi

Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjalds í heimabanka.  Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir "Nýr notandi".

Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 og 863-1399 og/eða á vidar@isi.is

Frá nemendum fjarnámsins:

"Faglegt og gott námsefni, þverfagleg nálgun á þjálfun og gott samband inn í greinarnar"

"Lærdómsríkt, skemmtilegt og nytsamlegt"

"Gott aðgengi að kennara og vel útskýrt námsefni"

"Hellings fróðleikur um þjálffræði"

"Vel skipulagt og skýr verkefnaviðmið og leiðsögn"

"Góðir kennarar og vel valið efni"

"Kemur með kunnáttu/þætti sem margir íþróttamenn hafa ekki vitneskju um en eru gríðarlega mikilvægir"

"Gott skipulag, gott kennsluefni og kennarinn fljótur til svars þegar maður þurfti hjálp"

"Námið er alhliða og hefur ólíkar nálganir"