Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
24

Eldur Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar tendraður í Róm

03.12.2021

Á morgun, 4. desember, verður eldur Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar sem nefndur er Flame of Peace tendraður við Ara Pacis, altari tileinkað friðargyðjunni Pax, í Róm. Áhugasamir geta fylgst með athöfninni í beinu streymi á YouTube kl. 18:30 að staðartíma.

Hátíðin, sem fara mun fram í Vuokatti í Finnlandi að þessu sinni, hefst 12. desember nk. með íshokkíkeppni drengja en aðrir viðburðir leikanna verða svo haldnir í mars næstkomandi, nánar tiltekið dagana 20. - 25. mars 2022.

Ísland mun senda þátttakendur til hátíðarinnar í marsmánuði.