Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
25

Framlenging sérstakra frístundastyrkja fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum

02.09.2021

Félags- og barnamálaráðherra hefur framlengt sérstaka frístundastyrki fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og verður nú hægt að sækja um styrki út árið 2021. Þá hefur ráðuneytið einnig gengið frá samningi við Abler um að hægt verði að sækja um styrkina með sambærilegum hætti og hefðbundinn frístundastyrk sem sveitarfélögin veita, eða við skráningu barns í íþrótt eða tómstund í gegnum rafrænt skráningarkerfi Sportabler. Stefnt er að opna fyrir umsóknir í vikunni að loknum prófunum á virkni kerfisins.

Hægt er að sækja sérstakan frístundastyrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2006-2015 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 787.200 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júní 2021. Styrkurinn er 25.000 kr. á hvert barn til áramóta og rúmlega 13.000 börn eiga rétt á styrknum. Stefnt er á að veita sams konar styrk eftir áramót.

Í frétt á vef ráðuneytisins lýsir félags- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, yfir ánægju sinni með samningana við Abler. Með þeim sé fólki gert kleift að sækja sérstakan frístundarstyrk í appinu og að með því hafi ferlið verið einfaldað til muna. Nú verði hægt að skrá í námskeið og sækja um styrkinn á einum og sama staðnum.